DROTTNINGARNAR
Skvísu blogg
19.11.2006 14:31:12 / Fanney

...skuggar í skjóli nætur... :)

Sælar elskurnar mínar, og takk fyrir síðast!! Jæja og hvernig skemmtuð þið ykkur svo í gærkvöldi? Ég verð nú að segja að það er ýmist í ökla eða eyra með fjöldann á þessum böllum, mér fannst húsið TÓMT!!! En engu að síður, meira pláss fyrir okkur á dansgólfinu..er ekki frá því að ég sé með ágætis blöðrur á fótunum eftir snúninga næturinnar :) En mér fannst kvöldið bara alveg ljómandi fínt. Skemmti mér vel á ballinu, og komst svona ansi "billega" frá kvöldinu sem er alltaf plús :) Græddi heila hvítvíns flösku um leið og ég labbaði inn, frá einhvjum manni sem ég veit ekekrt hvað heitir en hann heillaðist af "Drottningar-stílnum" :) Við verðum að fara reglulega út á lífið með kórónurnar, því ég heyrði því fleygt að einhverjar 3 drottningar hefðu ekki einu sinni þurft að borga sig inn!! Haha, geri aðrir betur!!! Já stelpur mínar, við erum agalegar prinsessur!!!! :) Guðrún mín, alltaf gaman að dansa við þig...þrátt fyrir að einhver dúddi hafi nú verið að troða sér inní "momentið" okkar, Gunni..eða Svenni eða e-ð hvað maðurinn hét nú aftur!! Ég arkaði nú af stað heima á leið með kauða uppá arminn, óðum skaflana UPP AÐ HNJÁM- án gríns!!! Fengum taxa þegar við vorum vel hálfnuð á leiðinni, og svo sendi ég kauða til síns heima...enda verður að segjast að maðurinn hafi verið svona nett "FJARSKA-FALLEGUR" eða "FLÖSKU-FRÍÐUR" kannski öllu heldur..hehe, það rann nefnilega eilítið af mér í hríðinni á leiðinni heim ;) Hugsa samt að ég hafi verið ansi nálægt því að drepa manninn úr leiðindum, enda þvaðraði ég um hvað karlmenn væru ómögulegir í allla staði og ekki verandi að púkka upp á þá frekar en ég veit ekki hvað!!! Já þarna var Fannslan sko komin í TUÐ-GÝRINN og þá er ekki aftur snúið :) Ekki eins ánægð með kauða eins og á dansgólfinu, hehe :) Jæja, svo vaknaði maður bara agalega sprækur í morgun, beint að þrífa, ryksuga (þ.m.t UNDIR SÓFANUM!!! ) , skúra, vaksa upp þvo þvotta og ég veit ekki hvað og hvað!! Sit núna með jólaöl í glasi, hlutsa á jólalög og rifja upp örlítið "gloppótt" kvöld. skemmtilegt í minningunni...eða amk. þar til e-ð annað kemur í ljós eða rifjast upp fyrir mér :) Eigiði yndislegan dag í sjónum stúlkur mínar, hressar og kátar drottningar!!! Þúsund kossar og knús Fannslan *komin í jólagýrinn*

» 23 hafa sagt sína skoðun

16.11.2006 13:52:46 / Guðrún

Hvernig á að losna við flensu?????

sælar skvísur.

Núna er spenningurinn fyrir laugardagskvöldið að nálgast hámark og ég er orðin þvílíkt spennt!! Er meira að segja búin að fá lánaða algjöra drottningarkórónu til að vera í allavega einu þema kvöldsins.

Núna er bara spurningin: Hvernig í ósköpunum á ég að losna við flensuna sem er búin að hrjá mig núna í 13 daga!?!?!?!8| Ég er hrikalega kvefuð, kalt, þreytt, slöpp - bara allur pakkinn!

Öll ráð vel þegin :!:

slöpp kveðja....     Guðrún lasarus


» 5 hafa sagt sína skoðun

13.11.2006 22:17:53 / sunny

SÁLARBALL 18 NÓV!!!!!!!

Þá er það ákveðið á fámennum fundi í nafnlausa saumaklúbbnum að við erum að fara allar saman á Sálarballið á laugardaginn og erum búnar að bjóða okkur kvennaskaranum í fyrir-partý til Sigga Valla.. hann er reyndar ekki ennþá búinn að samþykja það en við tökum sko ekki nei fyrir svar og hættum ekki fyrr en að hann segir já, veriði velkomnar, sem er mjög líklegt! En planið er að hittast fyrst heima hjá Fönnslunni í Pizzabæjarpizzu og hvítvín og bjór og breezer og smirnoff og rauðvín ef einhver vill og já, ef það fór eitthvað framhjá ykkur þá erum aið að fara á FYLLERÝ :) og okkur vantar eitthvað þema... Fanney kom með hatta-þema en Sunnefa með handjárna og indverskt þema.. en þar sem að við erum svo steingeldar í þessum þema málum þá eru allar hugmyndir VEEEEL þegnar... og koma svoooooo gerum þetta ógleymanlegt því þá sjaldan maður lyftir sér upp :):) Og koma svo allar saman nú....."SVO KOM AAAAAA....." :):):):) Eru ekki allir að komast í gýrinn fyrir laugardagskvöldið... Over and out.. Fannslan og Sunny

» 27 hafa sagt sína skoðun

09.11.2006 21:02:07 / Halla

Sálin í Hlégarði

Haldið þið að Sálin sé ekki bara að spila í Hlégarði laugardaginn 18. nóvember. Það skemmtilegasta við það er samt að þessa helgi verð ég í bænum :)

Hvað segið þið skvísur um að við skellum okkur á ballið og slettum ærlega úr klaufunum :)

Set hérna inn myndir frá okkur í action (bara svona til þess að hita upp fyrir sálina)

p.s. var að fá úr lokaprófi í fullnusturéttarfari og ég var hæst í bekknum (montimont hehe)

Þessi mynd er bara snilld!!! svipurinn á Ernu er alveg piceless!

Við vorum held ég drukknari en við viljum láta....


» 11 hafa sagt sína skoðun

06.11.2006 09:44:05 / Fanney

Jamm og jæja...

Algjörlega sammála síðasta ræðumannni-það er bara ekkert að gerast á þessari síðu okkar!!! En nú erum við amk búnar að komast að því hvernig "við erum í henni" misgóðar, en flestar þokkalegar!!! Mikill léttir að heyra það, var einmitt búin að vellta þessu svo mikið fyrir mér...hehe :) Helgin mín var voðalega yndisleg, Við fengum lítinn frænda á föstudaginn s.l 3 nóv, 16 merkur og 54 cm með svartan lubba sem stendur út í loftið...agalega sætur!!! Svo á fötudagskvöldið var brunað upp á fæðingardeild að skoða gripinn og hitta nýbökuðu forledrana sem að líkum vorum ALSÆL með prinsinn sinn!!! Á laugardaginn fór Andrea Rós til pabba síns, mamman handalaus að venju, en hún skemmti sér konunglega svo það er nú bara fyrir öllu. Þegar hún kom heim brunuðum við í sveitina til mömmu og vorum þar fram á sunnudagskvöld. Ég sat langt fram á nótt að stúdera talaspeki og tarrot spil ásamt mömmu og Evu frænku minni, voða notó.. Jæja, hef nú ekki mikið meira að segja ykkur datt bara í hug að henda hérna inn nokkrum línum.. Hvernig var svo ananrs helgin ykkar, og hvað er svona að frétta af ykkur skvísunum?? Halla hvernig var á Gala-kvöldinu? og Kolla mín er ekki komin ferðahugur í ykkur?? Eigiði yndislegan dag elskurnar mínar.. Knús og kossar.. Fannsla - orðin krulla aftur :)

» 9 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 14:32:36 / Erna

Leiðist

Aldrei neitt að gerast á þessu blessaða bloggi okkar 8|

Hvernig eruði í henni?


» 6 hafa sagt sína skoðun

22.10.2006 15:26:38 / Halla

Árshátið!

Ég setti inn skoðanakönnun varðandi árshátíðina okkar. Við sem erum í nefndinni þurfum svo að hittast til þess að byrja að skipuleggja :)

Hverjir voru aftur í nefndinni? Allavega Sunnefa og Kolla minnir mig.........


» 16 hafa sagt sína skoðun

19.10.2006 09:12:46 / birta

"Top Model"....???

Erna varstu ekki að tala um að þú ættir að teikna live módel í skólanum?
Voru þau nokkuð svona....? hahahahahaha



En allavegs þá finnst mér vera kominn tími á smá hitting hvað finnst ykkur hinum, og kannski ætti ég bara að dru... til að gera eitthvað í því! hehe
Ætla að reyna finna tíma á milli verkefna og ritgerða á næstunni læt ykkur vita með fyrirvara og ef ekkert gerist endilega pikkið í mig....


Kveðja Birtus

» 3 hafa sagt sína skoðun

12.10.2006 23:54:46 / sunny

HALLÓOOOOOOOOO!!!!

Sko ég er með tvær hugmyndir... No 1. Komið nú allar á myspace.com.... það er svoooo gaman og ég er í keppni við Agnar bró um hvor eigi fleiri vini!!! :) Og No 2... af hverju skráum við okkur ekki allar í SKO.. þar er sko frítt að hringja á milli....

» 4 hafa sagt sína skoðun

09.10.2006 13:23:35 / Guðrún

Takk fyrir síðast!

Sælar skvísur og takk fyrir síðast!

Þetta var rosa fínt og gaman að sjá ykkur allar saman - æðislegur maturinn líka á Tapas! mmmmm:lol:

Ég var aðeins að fikta í síðunni og gerði hana svona fallega rauða, vona að allir séu sáttir við það :haha:

Annars er bara lítið að frétta af mér, vinna vinna vinna og svo London baby fyrstu helgina í nóvember! Er reyndar að fara bara í vinnuferð en vonandi næ ég að kaupa eitthvað af jólagjöfunum - hef keypt jólagjafirnar erlendis síðustu 2 ár! Rosa næs 8)

Heyrumst og sjáumst!     Guðrún


» 5 hafa sagt sína skoðun

05.10.2006 22:50:51 / sunny

TAPAS KL 20!

Jæja, kominn tími til að ég hendi hér inn eins og einni færslu.... og það er einmitt í því tilefni að saumaklúbburinn okkar ætlum saman út að borða á Tapas á laugardaginn kl 20.. Það lítur út fyrir að verða metþátttaka!!!! Eru ekki allir game????

» 8 hafa sagt sína skoðun

02.10.2006 22:41:21 / Kolla

Kaffihús á miðvikudagskvöldið

Sælar skvísur.

aðeins að tékka á stemningunni fyrir kaffihúsaferð á miðvikudagskvöldið, ekki seinna vænna að fara að hópurinn hittist með Sunnefu, gætum þá planað eitthvað fyrir laugardaginn eins og Halla var að tala um. Hvernig líst þér á það Sunnefa? og auðvitað þið allar hinar líka..

kv. Kolla


» 13 hafa sagt sína skoðun

29.09.2006 19:03:55 / Halla

Heimkoma

Ákvað að láta aðeins heyra í mér, þar sem það er kominn svo langur tími síðan síðast. Jæja, ég fór í fyrsta prófið mitt hérna í háskólanum í hádeginu og gékk bara mjög vel :) Þetta er reyndar frekar erfitt efni svo ég er bara mjög sátt.....ég hélt ég myndi aldrei fá svona "búin í prófi tilfinningu" aftur en þessi tilfinning er engu lík.  

Svo er ég að koma í bæinn á föstudagskvöldið næsta, 6. okt. Lendi um 22 leytið svo það verður lítið úr því kvöldi. En ég myndi endilega vilja hitta ykkur sem flestar á laug. Sunnefa, við verðum að hittast í þetta skipti sem ég kem í bæinn, gengur ekki að ég komi í bæinn án þess að hitta þig.

Annars hlakka ég bara til að koma heim...bið að heilsa í bili


» 6 hafa sagt sína skoðun

28.09.2006 12:41:55 / birta

Normalt...???

Rosalegir þessi kínverjar.....





Finnst svona á svipnum á krakkagreyinu að henni finnist þetta ekkert sérstaklega þægilegt.......

» 4 hafa sagt sína skoðun

26.09.2006 15:16:17 / Erna

Hún Fanney okkar á afmæli í dag!!!

Innilega til hamingju með 25 ára afmælið elsku Fanney!

Vonandi að þú eigir yndislegan dag sem og alla aðra daga :D

 ~~~~~ Knús og kram ~~~~~

                


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 15
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti